|
06.01.2010 01:00:37 / ransa
»
03.01.2010 20:01:47 / ransa
Ji, ég er ekki bara forspá, heldur stjórna ég heiminum ...óvart, ekki fyrr búin spá fyrir um Heklugos þegar fjallið fer að tútna út! Nú er bara að hinkra eftir að Hekla springi og eftir icesave-klúðrinu. Ég hefði kannski átt að sleppa þessu með gróðurhúsaáhrifin.
»
02.01.2010 02:30:28 / ransa
Ég gerði glænýja Völvuspá fyrir árið, gjörið svo vel:
1. Forsetinn skrifar ekki uppá icesave
2. Þjóðin hafnar Icesavce í atkvæðagreiðslu
3. Bretar verða brjálaðir, en okkur er skítsama...við ullum á þá
4. Kötlugos
5. Bubbi og frú skilja
6. Ólafur og Dorrit skilja
7. Bubbi og Dorrit byrja saman
8. Bubbi og Dorrit hætta saman
9. Sprengigos í Heklu
10. Páll Óskar kemur út úr skápnum: Hann er gagnkynhneigður.
11. Páll Óskar og Dorrit byrja saman.
12. Bretar fara í stríð við okkur, okkur er alveg sama, við ullum meira á þá.
13. Bretar hóta að innleiða hér vinstri umferð, asnalegar
rafmagnsinnstungur, ensk pund, óskiljanlegar mælieiningar, mintusósu og
vont kaffi... og konungsfjölskylduna
14. Við borgum Icesave
15. Gróðurhúsaáhrifin hætta og það verður alltaf ömurlegt veður aftur.
»
23.12.2009 02:36:15 / ransa
Einu sinni var ég 3 vetur í sænskum barnaskóla 10 til 12 ára bekk: Ég er svo að reyna að muna hvað krakkarnir hétu:Kim Rosén, Maria Söderberg, Monica eitthvað franskt, Git Björk, Jan Peter Olson, Jan Uwe, Susanne..., Elaine Jansson, Michael...,Lars... ***
, Ronny Petersson (eða er það einhver íþróttamaður?), Karin..., Elisabeth
Jönsson?, ??? Kennarinn hét Una Bäckström. Það var mötuneyti og alltaf
hrökkbrauð með matnum sem var voða sænskur: Strömming og Lappkojs og
allir krakkarnir alltaf í tréskóm. Á hverjum degi voru íþróttir, íshokkí á veturna og gufubað með hlaupi út í snjónum á eftir. Bara ansi fínn skóli held ég. Samt eins og þetta hafi ekki verið ég þarna heldur einhver önnur stelpa. Ég hef aldrei farið til Svíþjóðar aftur, en ég tala sænsku eins og innfædd ennþá! Ég hugsa oft um þetta og hef gaman af að rifja upp þessi ár. Mig langar til að fara til Uppsala aftur.
Ég fann svona sænska vinaleitarsíðu með þessum skóla, en sá eini sem ég þekkti var hinn íslenski krakkinn í skólanum.
»
22.12.2009 01:07:32 / ransa
Oh, hvað það er kósí að það eru að koma jól. Ég er að vísu ekki komin í jólafrí, en ég þarf ekki að vekja neinn, ekki að útbúa nesti og fínt að sjá synina lúllandi undir sæng þegar ég fer í vinnuna. Þeir taka jólafríið mjög föstum tökum og sofa vel út. Magnús var t.d enn lúllandi þegar ég kom heim úr vinnunni, hafði bara skriðið upp í mitt rúm í millitíðinni. En ég á auðvitað mýkstu dýnuna eins og bangsamamman í sögunni. Ég bjó til jólakort og bakaði meira að segja 4 sortir, þar á meðal unaðsflottar og fullkomnar marengskökur. Þegar maður á hrærivél er svo auðvelt að baka. Hrærivélin okkar er fagurbleik KitchenAid, sannkölluð fegurðardís og er vinnusöm og skapgóð í þokkabót. Hún er heitt elskuð á heimilinu. Nýjasta dillan er að ég er að gera vefsíðu í dreamweaver, hún verður gasalega flott....einhverntímann. Þá get ég haft blogg án þess að vera með svona asnalegar auglýsingar á síðunni minni.
»
22.11.2009 00:47:41 / ransa
Í dag fórum við á myndlistarsýningu FB listnámsbrautar, en Magnús á verk
þar sem er auðvitað mjög flott. Allir verða að drífa sig á þessa
sýningu: Gallerí Tukt oní bæ!
Ég er auðvitað ekki byrjuð á jólabókalestri, en ég er byrjuð að hita mig upp með bókasafnsbókum eftir aðalhöfundana. Ég fann bækur eftir Einar Kárason, Arnald Indriðason og Hallgrím Helgason sem ég átti eftir að lesa. Ég var bara búin að lesa næstum allar bækurnar þeirra. Ég held mest upp á Hallgrím, hann er svo skemmtilegur. Ég var um daginn að lesa Rokland og ekki alls fyrir löngu 10 ráð til að ...snilldarbækur. Svo fann ég "Þetta er allt að koma" sem ég átti eftir að lesa og hlakka til að athuga hana.
»
14.11.2009 21:06:13 / ransa
Haaaallló. Ég er farin að blogga ca. einu sinni á öld. En það er nú allt ílagi, býst ég við. Af mér er auðvitað allt fínt að frétta og helstu tíðindin að ég er í myndlistarnámi í Listaháskóla Íslands ásamt vinnunni minni. LHÍ fyrir hádegi og LV eftir hádegi. Flókið púsl en gengur bara nokkuð vel. Helst að ég missi úr hádegismat, sem telst hið besta mál miðað við kjörþyngd. Í skólanum er ég með allra elstu nemendum, einn bekkjarfélaginn spurði mig í gær, hvaða tónlist ég hafi hlustað á "á mínum yngri árum"?... Ég svaraði: Megadeth og Mozart. En síðan fer ég í vinnuna og er þar í sama unglambahlutverkinu og ég var í þegar ég byrjaði þar fyrir 15 árum síðan. Meðalaldur starfsmanna hefur nefnilega hækkað um ár á ári. Þetta með aldurinn núllast því út og mér líður nokkuð eðlilega. Guðný vinkona mín sagði að ég yrði ábyggilega eins og fiskur í vatni í LHÍ, það er alveg rétt hjá henni. Mér finnst snilld að vera þar. Fyrir utan myndlistina, þá er andrúmsloftið þar eins og ég vil hafa það. Penheit, snyrtilegur klæðnaður og íhaldsamar skoðanir eru ekki aðalmálin á þeim bæ. Fyrir vikið á ég auðveldara með að halda út andrúmloftið á vinnustaðnum, þar sem er "bannað" að vera í óburstuðum skóm og ekki í sjálfstæðisflokknum og ég var vægast sagt orðin ógeðslega leið á. En Landsvirkjun varð náttúrulega illilega "2007", verandi það fyrirtæki sem hún er, tölum ekki meir um það... En ég er ekki frá því að það sé eitthvað að lagast.
»
14.06.2009 12:49:17 / ransa
Ég er bara alveg alein, allir feðgarnir í burtu, Snorri í París með lúðrasveitinni, Skúli í Amsterdam og Magnús gisti hjá vini. Ég er að hugsa um að byrja daginn á að gera áætlun um í hvaða röð sé best að taka til, eða reyta arfa, eða þvo þvott. Þetta er ansi flókið, best að ana ekki út í neitt að óathuguðu máli. Ég ætti kannski frekar að fá mér kaffi eða te eða kakó. Talandi um Kakó, allir sem þekkja mig vita að ég er afar klár, en veit fólk almennt að ég er snillingur í kakógerð? I don't think so. Ég legg sérlega mikinn metnað í að búa til unaðslegt og ómótstæðilegt kakó, sem ég gef sonunum á kvöldin til að lokka þá til að slökkva á stríðstölvuleikjum og fara að sofa afslappaðir og hamingjusamir. Ég er búin að þróa allskonar trix í kakógerð.
Ég las allar þrjár glæpasögurnar eftir Stieg Larsson: Karlar sem hatar konur og hinar tvær. Ég las þær allar á sænsku sem var mjög gaman. Mjög góðar bækur, eðalkrimmar. (Ég þarf endilega að komast til Svíþjóðar og fá að tala sænsku aftur. Ég hef ekki komið þangað síðan ég bjó þar sem krakki fyrir 100 árum.) Ég mæli með þessum bókum, þær eru örugglega til á íslensku líka. Annars er sænska sosum ekkert erfið: "Sju sjösjuka sjömän skjöt sju sjösjuka sjuksköterskor" Það er reyndar erfitt að bera þetta fram, en hægt að læra það hjá mér. Konan sem bjó á efri hæðinni á Väktargatan 66a, kenndi mér meira að segja að segja þetta með stokkhólmskum hefðardömuframburði, mjöööög fínt.
»
22.05.2009 01:39:16 / ransa
Ég var nú bara alveg búin að gleyma þessu bloggi, maður er kominn á facebook og sona (er ekki orðið soldið "last year" að blogga?). Ég verð að segja að mörgu leyti finnst mér kreppan ánægjuleg, ég er alltaf við og við að fá svona notalega öryggistilfinningu um að allt sem var áður og maður hélt að væri horfið sé að koma aftur. Mér finnst þjóðin að verða eins og hún var á 8. áratugnum. Við íslendingar erum hættir að nota kreditkort, við göngum í lopapeysum, við borðum fiskibollur. og ræktum kartöflur. það fór dejavu-straumur um mig þegar ég fór í banka í haust og gat rétt með herkjum kríað út gjaldeyri fyrir 50000 kr. Ég hjóla út í fiskbúð með innkaupanet og kaupi ýsu með haus og sporði pakkaða í bréf í nýopnuðu gamaldags fiskbúðinni niðrá höfn. Ég átti afmæli í síðustu viku og varð 18 ára aftur. Ég er að fíla kreppuna í botn.
»
28.01.2009 00:24:36 / ransa
Vá hvað ég er ánægð með að fá Jóhönnu fyrir forsætisráðherra. Hún er frábær. Ég er ánægð með þennan part af kreppunni: Sjálfstæðisflokkurinn í öllu sínu klikuveldi farinn úr ríkistjórn. Loksins! En hvað með Davíð? Hann er eins og skemmdur endajaxl sem er flokkurinn þorir ekki að láta draga úr sér. Einhver sagði að hann hefði átt að verða ritstjóri Moggans. Haha, það hefði orðið skemmtileg lesning eða hitt þó heldur, sennilega eintóm fúkyrði alla daga.
»
14.01.2009 23:49:33 / ransa
Ég er að hugsa um að byrja aftur að blogga. Ég fékk ritstíflu í kreppunni.En kreppan á að vera til 2013, þ.a það þýðir ekki að bíða eftir að hún fari... Ég var nú reyndar ansi dugleg í bloggpásunni: Ég fór í hagfræði í háskólanum og komst að því að þó greinin sé eflaust áhugaverð, þá eru kúrsarnir í Hí ógeðslega leiðinlegir, mest einhverjir bankapésar að monta sig hvað þeir eru klárir stærðfræði (svona verðbréfasnúðar með alltof stóra skyrtuhnappa, núna gjaldfallnir og heppnir að halda aukavinnunni í skólanum). Þ.a ég bætti við mig listfræðikúrsum sem voru miklu skemmtilegri og svo vann ég meira en ég hafði ætlað í upphafi, eiginlega fulla vinnu með sveigjanlegum vinnutíma. Þar fyrir utan fór í myndlistarkúrsa í frístundum og bjó til geðveikan skúlptúr sem er með tölvustýringu og allskonar þráðlaus fiff. Það var auðvitað mjög skemmtilegt og ég ætla að gera meira svona. Svo lærði ég á Illustrator og bjó til auglýsingaplakat. Illustrator er kúl forrit. Ég brilleraði reyndar ekki á pæju og í-sund-á-morgnanna-sviðinu. En maður þarf nú að hafa einhver langtímamarkmið... Synirnir eru duglegir og yndislegir eins þeir eru vanir og Snorri er orðinn talsvert stærri en ég síðan síðast, kominn með djúpa rödd og MAgnús á kærustu. Tíminn líður hratt á gervihnattaöld...
Mér skildist í sjónvarpinu að kallinn sem skrifaði greinina sem ég vitnaði í síðasta blogginu áður en ég fór í pásu mæti á næsta borgarafund í Háskólabíó. Góða nótt í bili.
»
12.10.2008 01:21:52 / ransa
Það er gaman að lesa ensku blöðin núna: http://www.guardian.co.uk/commentisfree/2008/oct/10/iceland-gordonbrownÉg er mjög hneyksluð á að ekkert sé fjallað um ensku skýrsluna sem Landsbankinn pantaði sl. vor og stakk undir stól. Hverslags roluháttur er á íslenskum fjölmiðlum eiginlega? Það ætti fyrir löngu að vera búið að birta langa grein um þessa skýrslu og setja þessa bankaglæpona í fangelsi fyrir að halda henni leyndri. Hér er úrdráttur úr skýrslunni. Bankamódel íslendinga er hér fyrirfram dauðadæmt sé ekki eitthvað gert í málunum.  Mig minnir að Edda Rós bankakona hafi talað fyrir evruupptöku fyrir nokkrum mánuðum. Gera hana að bankastjóra Nýja Kaupþings, það væri stæll á því að hafa eintómar konur í bankastjórastöðunum.
»
09.10.2008 00:30:13 / ransa
Á MBL-vefnum stendur þessi frétt: "Bresk stjórnvöld beittu lögum um varnir gegn hryðjuverkum þegar þau ákváðu að frysta eignir Landsbankans..." Ha, ha þetta er fyndið. Einhver kommenterar og leggur til að Fjámálaeftirlitið taki yfir seðlabankann, er það ekki bara góð hugmynd.
»
07.10.2008 09:37:21 / ransa
Mikíð var skrýtið að hlusta á Geir Haarde í gær, ræðan hans var illskiljanleg véfrétt um einhverskonar tilbrigði af heimsendi, það var eiginlega alveg jafn upplýsandi og að horfa á táknmálstúlkinn, sem lýsti hugtökum eins og "ólgusjó" með æsilegu handapati. Ég hélt næstum að forsætisráðherrann myndi taka upp byssu og skjóta sig í beinni þegar hann var búinn að segja "Guð blessi Ísland" í lokin. Svo á eftir, sat maður bara og deplaði augunum og púslaði þessu saman í huganum: bankarnir farnir í vaskinn, það var greinilegt, en maður gat alveg eins ímyndað sér að það yrði líka vöruskömmtun, skrúfað fyrir yfirdráttarreikninga og hraðbanka og skólum lokað. Mér finnst að Geir hefði átt að gera þetta í annarri röð. Byrja á að flytja frumvarpið og halda síðan svona ræðu. Verst að nafnið Saving Iceland er upptekið. Það hefði verið passandi nafn á ríkistjórnina núna, að ég tali nú ekki um vefsíðunafnið Saving Iceland.ORG! Skvt. erlendum fréttablöðum um líklegt framhald, fara bankastjórarnir sömu leið og Karíus og Baktus. Eða getur maður sett heila þjóð á hausinn og mætt svo í vinnuna með silkibindið eins og ekkert hafi í skorist?
»
05.10.2008 13:59:07 / ransa
Ég gleymdi að fara í vinkonupartý í gær. Ég er mjög spæld, það er ekki eins og maður sé alltaf í partíum. Ég var bara upptekin af venjulegri laugardagskvöldaiðju: Borða góðan mat og horfa á Spaugstofuna og svona. Kvöldið var því ósköp notalegt. Reyndar afrekaði ég að kvitta út aðgerðalista sem ég gerði um daginn með miklu skvísuátaki sem ég ákvað að fara í af uppsafnaðri þörf , þ.e. uppsöfnuðum hallærislegheitum og ótímabærri öldrun svona almennt. Ég réðst því í eftirfarandi lýtaaðgerðir:
0. Fór í apótek og keypti mér krem og þ.h. 1. Rakaði á mér fótleggina 2. Setti brúnkukrem á fótleggina og smá svona hér og þar annarsstaðar 3. Rauðlakkaði á mér táneglurnar 4. Setti ljósar strípur í hárið á mér 5. Litaði á mér augnhárin (svört) 6. Setti glitrandi naglalakk á fingurneglurnar.
Þar að auki er ég í megrun og hef lést um 1 kíló.
Á stefnuskránni er að nota skartgripi, andlitsfarða og vera í burstuðum skóm og ekki mjög ljótum fötum... Ef þetta gengur vel, fer ég með málið á næsta stig og fæ mér fín föt og geng í fínum skóm og tjúnna upp andlitsfarðann. Ég reikna því með að umbreytast í þriðju gráðu ofurpæju innan skamms. Svo ætla ég ekki að gleyma að mæta í partý ef mér skildi verða boðið aftur.
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|